Lyfja er skemmtilegur og líflegur vinnustaður þar sem nálægt 350 starfsmenn starfa eftir gildum fyrirtækisins en þau eru:
Lyfja er eftirsóknarverður vinnustaður þar sem ríkir góður starfsandi og leggjum við kapp á að öllum líði vel og að vinnuumhverfi sem og aðbúnaður sé eins og best verður á kosið.
Hjá Lyfju starfar fólk með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar, framhaldsskólanemar og háskólanemar svo eitthvað sé nefnt. Það eru um 90% starfsmanna konur, meðalaldur er 39,7 ár og meðalstarfsaldur er 5,3 ár.
Mikið fræðslustarf er hluti af því að reka góðan vinnustað og eru reglulega haldin námskeið til að auka þekkingu og færni starfmanna auk þess sem fyrirtækið veitir styrkir til sí- og endurmenntunar. Við leggjum áherslu á að starfsfólk okkar þróist og vaxi í starfi hjá fyrirtækinu. Haustið 2015 fékk Lyfja hf. Jafnlaunavottun VR og erum við afar stolt af þeim áfanga.
Öflugt starfsmannafélag sér svo til þess að við skemmtum okkur reglulega saman.